16.04.2005 18:30:39 / gíraffastelpa
Fjölskylduskemmtun
Ég fór á fjölskylduskemmtun í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum í dag og
þar var Hildur Vala að syngja, Birta og Bárður að skemmta og dæma
karokee keppni og fleira. Þetta var nú bara fínt framtak hjá
Símanum. En þetta var ekkert smá langt, það vildu allir
krakkarnir syngja eitthvað lag með Birgittu Haukdal, sama lagið sko
ég held að ég myndi ekki alveg nenna að heyra það lag í bráð.
En krakkarnir höfðu gaman af þessu sem er nú fyrir öllu.
Skemmtunin stóð frá klukkan 14- rúmlega 17. Já þarna lagið
heitir, ég vil ekki vera svona...... eða eitthvað þannig.
Dagný Freyja hans Gumma míns fór ásamt dóttur vinkonu minnnar að
syngja og þær voru ekkert smá sætar, dálítið svekktar yfir því að
vinna ekki en Dagný Freyja sagði samt að hún ætti alla vegana
kisu, það var bót í máli. Alltaf gott að eiga kisu
þegar maður vinnur ekki í söngvakeppni. Ég ætla að muna það
næst þegar hlutirnir fara ekki alveg eins og ég óska.