gíraffastelpan
23.03.2005 00:34:35 / gíraffastelpa

Laugavatnssýklar og rómantík

Við kærustuparið smelltum okkur í sumarbústað á Laugarvatni á síðasta föstudag. Lukka litla kom nú með okkur og var hin rólegasta á leiðinni í bílnum, skoðaði sig um það og baðaði sig í sólarglætu sem skein inn um glugga tryllitækisins okkar.  Þetta var afskaplega notarlegt, heitur pottur, góður matur og fullt að kósýheitum.  Þar til að mér tókst að ná mér í utanbæjarsýkla og verða veik.  Þetta er alveg merkilegt mér tekst alltaf að ná mér í einhvern viðbjóð þegar ég fer út fyrir bæinn en nú er ég komin heim á undan áætlun og líkami minn fer nú að knúsa sýklana sem ég þekki hérna á Akranesi og þá verður allt í lagi.  Akranessýklarnir og ég erum eitt, þeir sýkja mig ekki af einhverri stóru bólu.  Ég er farin að þekkja þá og þeir munu nú ráðast á Laugavatnssýklana og herja orrustu svo að mér batni.  Það er nú ein sæt litla sem ég þekki sem fékk alltaf utanbæjarútbrot, þegar hún fór út fyrir borgarmörk Reykjavíkurborgar.  Þannig að Stína steina kannski þetta sé eitthvað svipað heilkenni sem ég er með???

Heiðrún Hámundar skrifaði
Mér finnst kúl að vera með Skagasýkla...ég er örugglega líka með svoleiðis....allvega líður mér alltaf best á Skaganum;o)
Þórunn María skrifaði
Játs, skagasýklar eru málið. Ég fíla ekkert þessa laugavatnssýkla, þeir sýkja bara!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.