09.10.2005 23:19:30 / gíraffastelpa
hégómi
Góða kvöldið! Nú er bara alveg að líða að merkum áfanga í
lífssögu minni, uss já, ég er að verða þrítug á
miðvikudaginn. Er að spá í að sofa þann dag bara af
mér. Hef aldrei vitað hvað ég á að gera við þessa afmælisdaga
sem poppa upp á hverju ári. Ég hef miklu meira gaman af
afmælum annarra sem eru mér nánir. Það er samt kannski gaman
að vera aðal í einn dag svona annars lagið. En annar merkari
áfangi mun vonandi eiga sér stað fljótlega, eftir nokkrar vikur,
svona 2-6 vikur, ó jú jú ég ætla að reyna að myndast við að fæða
barn. Kvíði ekkert verkjum og því en kvíði því að þurfa að
vera á sprellinu fyrir framan fólk og vera eins og ég sé að kúka í
framan fyrir framan aðra. Hégóminn alveg að gera sig hjá
mér! Eins að missa stjórn á hegðun sinni fyrir framan fólk,
ég hræðist það dálítið, gæti orðið saga til næsta bæjar ef ég færi
nú að grenja og öskra eða eitthvað. En það væri samt eitthvað
til að skemmta sér yfir í huganum eftir á. Gæti til dæmis
sagt við gumma minn, mannstu hvað ég var kúkaleg í framan um
daginn. En svona er ég vitlaus, er ekki að hugsa um það sem
ég ætti að vera að gera varðandi þetta allt saman, heldur er
hégóminn að gera innrás í huga minn.