gíraffastelpan
09.10.2005 23:19:30 / gíraffastelpa

hégómi

Góða kvöldið!  Nú er bara alveg að líða að merkum áfanga í lífssögu minni, uss já, ég er að verða þrítug á miðvikudaginn.  Er að spá í að sofa þann dag bara af mér.  Hef aldrei vitað hvað ég á að gera við þessa afmælisdaga sem poppa upp á hverju ári.  Ég hef miklu meira gaman af afmælum annarra sem eru mér nánir.  Það er samt kannski gaman að vera aðal í einn dag svona annars lagið.  En annar merkari áfangi mun vonandi eiga sér stað fljótlega, eftir nokkrar vikur, svona 2-6 vikur, ó jú jú ég ætla að reyna að myndast við að fæða barn.  Kvíði ekkert verkjum og því en kvíði því að þurfa að vera á sprellinu fyrir framan fólk og vera eins og ég sé að kúka í framan fyrir framan aðra.  Hégóminn alveg að gera sig hjá mér!  Eins að missa stjórn á hegðun sinni fyrir framan fólk, ég hræðist það dálítið, gæti orðið saga til næsta bæjar ef ég færi nú að grenja og öskra eða eitthvað.  En það væri samt eitthvað til að skemmta sér yfir í huganum eftir á.  Gæti til dæmis sagt við gumma minn, mannstu hvað ég var kúkaleg í framan um daginn.  En svona er ég vitlaus, er ekki að hugsa um það sem ég ætti að vera að gera varðandi þetta allt saman, heldur er hégóminn að gera innrás í huga minn.  

» 105 hafa sagt sína skoðun

24.09.2005 18:12:26 / gíraffastelpa

klukk!!!

Ok klukka Guðrúnu Elsu, Siggu og Orra!  5 staðreyndir um ykkur komaso!

» 80 hafa sagt sína skoðun

24.09.2005 18:09:39 / gíraffastelpa

Klukk frá rósu

Hún Rósa klukkaði mig, sem þýðir víst að ég þarf að skrifa 5 staðreyndir um mig inn á bloggið mitt. Það er víst þannig að ef bloggari er klukkaður þá er þetta reglan. Hummmm það er spurning hvað ég get logið af ykkur, eða kannski ekki logið fyrst þetta eiga að vera staðreyndir.

1. Ef ég borða bjúgu, æli ég. Mér finnst bjúgu alveg hræðilega vond. Ég gerði heiðarlega tilraun ekki alls fyrir löngu að borða salat, svona svipað baunasalati með bjúgum í og hélt kannski að ég væri búin að hrissta þetta af mér, en ónei, ég varð erótískari en fjandinn sjálfur og ældi.

2. Ég á gítar sem heitir Guðjón, piano sem heitir Baldwin og elska þessi tvö hljóðfæri. Hef vanrækt Baldwin dálítið, hann er vanstilltur greyið.

3. Þegar ég eignast ný föt, þá verð ég stundum svo spennt yfir þeim að mig langar mest til að sofa í þeim. Getur verið dálítið asnalegt þegar ég er að fá mér nýja skó, hef stundum sofið í nýjum fötum sko en ég held samt að þetta sé aðeins að lagast hjá mér.

4. Mér finnst freknur æðislegar, langar að hafa þær framan í mér. Ég fæ ekki freknur. Þó að ég fari í ljós eða sól þá virkar það ekki. Það er nefninlega dálítið gíraffalegt að vera með freknur og gíraffi er uppáhalds dýrið mitt. Vildi óska að það væri til míní útgáfa af gíröffum, þá myndi ég eiga þannig gæludýr.

5. Mér finnst rok leiðinlegasta veður sem til er. Mér er alveg sama hvernig veður er annars en bara ekki rok. Ég kafna alltaf næstum þegar ég er úti í roki, verð eins og litlu krakkarnir og get ekki andað. Dálítið lummó, ekki gott fyrir hégómann í mér að vera rauð og blá í framan með tár í augunum og þannig þegar ég kem inn úr roki.

Ok þetta voru 5 staðreyndir um mig! Ég ætla aðeins að hugsa málið hvaða fólk ég klukka. ble í bili

» 91 hafa sagt sína skoðun

02.08.2005 21:51:50 / gíraffastelpa

borða og borða

Ég er alltaf svöng, hvernig stendur á þessu?  Ég er að reyna að borða bara hollt og þannig en mér leiðist svo að borða stundum, ég er ekki vön þessu.  Borða alveg oft á dag!  Ég borðaði alltaf einu sinni til tvisvar á dag en núna kannski 5 sinnum á dag.  Þetta er auðvitað bara rugl en ég verð með brjálæðislega kjálkavöðva þegar þessari meðgöngu er lokið og ofur stekar tennur.  En samt sem áður held ég að þessi leið þ.e.a.s. borða nokkrum sinnum á dag og temmilegt magn sé hollara en að borða sjaldan og gúffa þá í sig, út af svengd. ó já systur og bræður, ég vona það að minnsta kosti.
Ég átti rólega verslunnarmannahelgi, horfði t.d. á Ronju ræningjadóttir, sem var alltaf ein af uppáhaldsbókunum mínum þegar ég var krakki.  Svo átti Gummi minn afmæli á sunnudag og ég mátti varla gera neitt fyrir hann, honum er ekkert um þetta umstang á afmælinu sínu, jólin eru alveg nóg segir hann.  Ég vildi gera þetta að alveg sérstökum degi fyrir hann en ég mátti það varla, svona er þetta en ég fékk að bjóða honum út að borða í gær og gefa honum örlitla gjöf á afmælinu. 

» 81 hafa sagt sína skoðun

30.07.2005 20:33:13 / gíraffastelpa

kann ekki að segja brandara

Bærinn er gjörsamlega tómur eða kannski heldur fáir á kreiki.  Mér finnst þetta dálítið fínt bara, rólegheit og ég fíla mig dálítið sem þorpsbúa. Enda er ég þorpari:evil:  
Þegar ég er að skrifa hérna þá man ég aldrei eitthvað sem ég alveg svoleiðis jesúa mig yfir í fréttunum eða einhverjar kjaftasögur eða neitt, þannig að ég veit stundum ekkert hvað ég á að segja hérna annað en um það sem er í gangi í dag.  Ég er kannski bara gullfiskur eða léleg í að festa mig í einhverju krassandi.  Þegar ég man kjaftasögur eða eitthvað þannig, þá man ég aldrei hvað fólkið hét sem kjaftað var um.  Stundum man ég fólkið brjálæðislega vel og þá man ég ekkert hvað það átti að hafa gert svona rosalegt.  Þannig að það þýðir ekkert fyrir mig að reyna, ég er reyndar alveg jafn mikill auli með svona brandara sem einhver segir mér.  Stundum man ég fyndna atriðið og þá man ég ekki söguna á undan og stundum man ég bara söguna en klikka á aðalatriðinu.  En það kemur samt fyrir að ég man eitthvað eins og kjaftasögu og ef ég gerist Gróa á leiti þá líður mér bara svo illa að vera að kjafta svo ég kannski bara nenni ekki að muna þetta, það gæti verið ástæðan.  Samt finnst mér ekkert leiðinlegt að vera sniðug og skella fram einhverri fyndni en ég klikka samt á því oft á tíðum.  En alla vegana þá er ég bara fersk í dag og held mig bara við það.


» 87 hafa sagt sína skoðun

18.07.2005 17:47:43 / gíraffastelpa

Sumir kunna hitt og þetta.....

Mér og Lukku, kisunni okkar, finnst voða gott að kúra þessa dagana.  Erum frekar svona þreyttar á því eitthvað.  Ætli hún sé ólétt líka?  Nei hún er á pillunni, ég ætla að vona að hún verði ekki ólétt í gegnum það dæmi.  Ég held að Lukka sé hætt að stækka, samt er hún ennþá svo lítil, eins og kettlingur.  Hún stækkar sem sagt ekki neitt, alla vegana ekki langsum. 
Ég var þess heiðurs aðnjótandi að hann Orri vinur minn spilaði fyrir mig lög sem hann er að fara að taka upp núna fljótlega.  Ég er að segja ykkur það að þessi væntanlega plata frá honum er svona, verð að eiga dæmi.  Sem sagt ef þið hafið áhuga á að líða vel þegar þið hlustið á tónlist, þá er þetta málið.  En hún kemur ekki út strax neitt alveg sko, en þið munið bara að ganga með u.þ.b. 2500-3000 kr í vasanum þangað til.  En alla vegana, þá finnst mér tónlistinn hans yndisleg, eins og hann er sjálfur. 
Ég á ekkert smá töff vini, sumir kunna að spila á gítar og semja, aðrir kunna að gera stjörnukort, aðrir kunna að búa til börn eins og Jóa Val (sem er by the way frábært barn), sumir kunna að stýra bát, sumir kunna að vera yndislegir vinir, sumir kunna að vinna á leikjarnámskeiðum, sumir kunna að syngja, sumir kunna að prjóna, sumir hafa komist í gegnum hörmungar í lífinu nokkuð heilir, kannski samt pínku snar eins og ég, einhverjir kunna á bókhald.  Mér finnst þetta töff!  Ég er samt líka dálítið töff, ég kann smá að hekla.

» 73 hafa sagt sína skoðun

15.07.2005 00:27:44 / gíraffastelpa

Gaman gaman

Gospel tónleikarnir voru fínir, allt gekk vel og svona þannig að það var ósköp gott.  Ég gerði samt eiginlega alveg útaf við mig.  Ég er nefninlega með eitthvað óléttu syndrom sem gerir það að verkum að ég má ekki vinna og svoleiðis þannig að líkaminn minn sagði bara nei eftir seinni tónleikana og ég bara var alveg ónýt í smá stund en er orðin fín núna.  Svona er þetta, maður verður  víst að hlusta á líkamann þegar hann talar.  Vildi bara stundum að hann myndi tala áður en allt fer í klessu, kannski kann ég bara ekki að hlusta nógu vel.  Ég er búin að komast að því að ég á alveg brjálæðislega frábært heimili og gjörsamlega dásamlegann mann, vissi það reyndar alveg frá byrjun sko.  Vildi bara deila þessu með ykkur.  Ég er heppna konan!  Gjafir lífsins svoleiðis streyma til mín.  Gaman gaman!  

» 94 hafa sagt sína skoðun

30.06.2005 23:46:08 / gíraffastelpa

gospelband Akraness með tónleika

Jæja nú er komin dagsetning á tónleika gospelbands Akraness.  Þeir verða haldnir í Saurbæjarkirkju, Hvalfjarðaströnd á miðvikudaginn 6. júlí klukkan 21:00 og svo í Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 7. júlí klukkan 21:00.  Þetta verður örugglega voða skemmtilegt og endilega mæta svooooooo.  Miðaverð er 1000 kr fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir 12 ára og yngri.  

» 85 hafa sagt sína skoðun

21.06.2005 23:14:13 / gíraffastelpa

jamm og jæja

Jæja loksins er ég fyrir framan tölvuna og nenni að blogga.  Það er nú eitt og annað búið að gerast í mínu lífi síðan síðast sko.  Ég er flutt í aðra íbúð sem er by the way algjört æði!  Svo er ég barasta búin að láta barna mig, svei mér þá.  Meðgangan er hálfnuð, svo að lítill gummi eða gumma eða þóurnn eða þórarinn er á leiðinni í þennan heim.  Voða gaman.  Annars var ég að koma af gospellæfingu og við stefnum á tónleika á næstunni, sennilega fyrstu vikuna í júlí.  Líklega bæði í Reykjavík og jafnvel á Akranesi líka.  Allir mæta svo.  Ég mun setja nánari upplýsingar inn seinna, það er að segja ef einhver er að lesa ennþá.  En ég ætla ekkert að lofa meira bloggi en vonandi verð ég duglegri en ég hef verið.  Ble í bili.  

» 91 hafa sagt sína skoðun

24.04.2005 14:42:41 / gíraffastelpa

frábærlegheit og best í heimi

Hvernig væri nú að skella sér í siglingu um Hvalfjörðin með vinum ykkar og fjölskyldum, eða jafnvel vinnufélugum?????  Finnst ykkur þetta ekki hljóma notarlegt og skemmtilegt? Hægt væri að renna fyrir fisk og láta vaska menn grilla aflann, fá sér svo kartöflusalat, gos eða eitthvað sterkara, hvað sem þið viljið, spegilsléttur sjór í Hvalfirði eða ekki svo sléttur???  ykkar er valið.  Þetta hljómar vel ekki satt???  Málið er nefninlega að minn heittelskaði var að kaupa sjóstangaveiðifleygið Andreu og mér finnst þið  ættuð að skella ykkur!!  Þetta er svo ógeðslega skemmtilegt og frábært.  Ef þið hafðið áhuga, sem þið hafið held ég, þá getið þið bara pantað fyrir hópinnn ykkar, ekki vandamálið!  Bara tekið upp tólið og hringt í síma 898 3300.  Þetta er það auðveldasta sem hægt er að gera og kostar aðeins 5000 kr á mann, þá er innifalið ferðalag í 3 og hálfan tíma, grillaður afli sem þið þurfið ekki að koma nálægt að grilla né flaka, bara veiða, kartöflusalat og gos.  Spáið í frábærlegheitum.  Rúsínan í pylsuendanum er svo að skipstjórinn er voða sætur og ef ég þekki ykkur sem farið þá reyni ég að gerast laumufarþegi eða þerna ef hitt gengur illa.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2005 18:30:39 / gíraffastelpa

Fjölskylduskemmtun

Ég fór á fjölskylduskemmtun í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum í dag og þar var Hildur Vala að syngja, Birta og Bárður að skemmta og dæma karokee keppni og fleira. Þetta var nú bara fínt framtak hjá Símanum.  En þetta var ekkert smá langt, það vildu allir krakkarnir syngja eitthvað lag með Birgittu Haukdal, sama lagið sko ég held að ég myndi ekki alveg nenna að heyra það lag í bráð.  En krakkarnir höfðu gaman af þessu sem er nú fyrir öllu.  Skemmtunin stóð frá klukkan 14- rúmlega 17.  Já þarna lagið heitir, ég vil ekki vera svona...... eða eitthvað þannig.  Dagný Freyja hans Gumma míns fór ásamt dóttur vinkonu minnnar að syngja og þær voru ekkert smá sætar, dálítið svekktar yfir því að vinna ekki en Dagný Freyja sagði samt að hún ætti alla vegana kisu,  það var bót í máli.  Alltaf gott að eiga kisu þegar maður vinnur ekki í söngvakeppni.  Ég ætla að muna það næst þegar hlutirnir fara ekki alveg eins og ég óska. 

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2005 16:59:25 / gíraffastelpa

Grjótharðir og Cheerios

Helgin er mætt á svæðið og ég komin í helgarfrí, jibbí!  Ég fór í leikhús í gær og sá stykki sem heitir grjótharðir, mjög góð sýning.  Það gerist innan veggja fangelsis og fjallar um 5 fanga, ég verð að segja að þetta leikrit snerti mig.  Mjög góður leikur í því og segir frá miklum ljótleika sem á sér stað út um allan heim.  Pálmi Gestson lék eitt hlutverkið, hann lék algjörlega siðblindann mann sem hafði framið ógeðsleg verk og maðurinn er frábær leikari!!!  Eins var Valdimar Örn mjög góður og bara allir, tveir ungir leikarar líka sem voru sko alveg að gera sig í sýningunni og Jóhann Sigurðsson var líka fínn.  Ég sat alveg fremst, næstum inn á sviðinu og leikararnir voru svona annars lagið að fá sér cheerios, þar sem þetta gerðist í mataraðstöðunni hjá föngunum og ég var að deyja mig langaði svo í cheerios.  Svo voru slagsmál á sviðinu og ég var næstum staðin upp til að biðja þá að róa sig á meðan ég fengi mér cheerios og kaffi.  En ég gerði það ekki, ég var bara svo eitthvað inn á sviðinu að mér fannst ég alveg mega vera með í smá stund.  En ég mæli með þessu leikriti.  En ég óska venslfólki og vinum nær og fjær góðra stunda í sólinni um helgina.  Ble ble í bili 

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2005 21:04:03 / gíraffastelpa

ýmisslegt í gangi sko

Ég er svo ánægð með kisuna mína hún er farin að fara út og hvæsa á stóra fressketti sem reyna við hana, svo stekkur hún skíthrædd inn um gluggan og veit að þar er öruggt skjól eftir að hún hefur verið að rífa kjaft við félagana.  Með pínku lítið hjarta ennþá, enda lítil og mikið að skoða í hinum stóra heimi.  Algjört krútt!  Svo kemur hún inn örþreytt eftir öll hlaupin og stökkin úti og missir meðvitund, vaknar bara til að fara í kassann sinn og borða.  Hún alveg meikar ekki meira!  Anyways, þá eru sýklar Laugavatns að fara minnkandi og Skagasýklar fara alveg að taka völdin í mínum kropp, þá verður allt í fína.  Vinnuhelgi framundan, sem er gott, alltaf gaman að vinna fyrir salti í grautinn.  Ég held svei mér þá að hún Heiðrún mín hafi verið að skjóta á mig á sinni síðu fyrir að vera ekki ánægð með þættina hans Gísla Marteins, þar kom í ljós að henni finnst ljótt að tala illa um aðra á netinu sem er alveg rétt og satt hjá henni.  Það var ekki fallegt af mér að setja út á karlgreyið, enda hef ég ekkert efni á því.  Ég er bara ekkert hrifin af þessum þáttum en eins og ég sagði þá er hann örugglega ágætis náungi og ég bara biðst forláts fyrir að hafa sært blygðunarkennd fólks og þá sérstaklega hann ef hann les þetta sem ég tel nú reyndar ekkert líklegt, en hver veit! Rétt hjá þér Heiðrún mín, takk fyrir ábendinguna, kannski varstu ekkert að meina þetta til mín, en ég tek þetta samt sem leiðsögn.   


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.03.2005 00:34:35 / gíraffastelpa

Laugavatnssýklar og rómantík

Við kærustuparið smelltum okkur í sumarbústað á Laugarvatni á síðasta föstudag. Lukka litla kom nú með okkur og var hin rólegasta á leiðinni í bílnum, skoðaði sig um það og baðaði sig í sólarglætu sem skein inn um glugga tryllitækisins okkar.  Þetta var afskaplega notarlegt, heitur pottur, góður matur og fullt að kósýheitum.  Þar til að mér tókst að ná mér í utanbæjarsýkla og verða veik.  Þetta er alveg merkilegt mér tekst alltaf að ná mér í einhvern viðbjóð þegar ég fer út fyrir bæinn en nú er ég komin heim á undan áætlun og líkami minn fer nú að knúsa sýklana sem ég þekki hérna á Akranesi og þá verður allt í lagi.  Akranessýklarnir og ég erum eitt, þeir sýkja mig ekki af einhverri stóru bólu.  Ég er farin að þekkja þá og þeir munu nú ráðast á Laugavatnssýklana og herja orrustu svo að mér batni.  Það er nú ein sæt litla sem ég þekki sem fékk alltaf utanbæjarútbrot, þegar hún fór út fyrir borgarmörk Reykjavíkurborgar.  Þannig að Stína steina kannski þetta sé eitthvað svipað heilkenni sem ég er með???


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2005 00:21:51 / gíraffastelpa

G.M. og rassgöt

Laugadagur til Lukku!  Sem sagt eru laugardagar handa Lukku kisunni okkar!  En bara svona byrjenda orð frá mér.  Ég veit aldrei hvað ég á að bulla hérna inn en það sem ég var nú að velta fyrir mér er að mér finnst ýmisslegt um margt eins og t.d. er ég ekki yfir mig hrifin af Gísla Marteini, kannski er ég bara ein um þá skoðun, eða hvað?  En skoðanir eru eins og rassgöt, við höfum öll eitt og svo framvegis.  En þetta er samt örugglega ágætis náungi en ég bara meika mjög illa að horfa á þættina hans, samt er hann að brjálast úr vinsæld.  En þetta er bara mitt rassgat.  Kannski ekki algengt rassgat, ekki veit ég það svo ofboðslega gjörla en eitt veit ég þó að ég er ekki að tryllast úr frygð yfir Gísla Marteini.

» 65 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7